Baráttan um hrunsmyndina + Færeysk tónlist
Baráttan um sögu hrunsins hefur staðið yfir í fimmtán ár og heldur áfram. Á sunnudags og mánudagskvöld var frumsýnd ný heimildarmynd um íslenska bankahrunið á RÚV, Baráttan um Ísland. Myndin er framleidd af Sagafilm fyrir erlendan markað - Good banks, bad banks nefnist hún á ensku. Og þeir sem eru skráðir sem leikstjórar eru sænski verðlaunablaðamaðurinn Bosse Lindquist, Margrét Jónasdóttir og Jakob Halldórsson. Eins og flest allt sem tengist hruninu þá hefur myndin vakið sterk viðbrögð á samfélagsmiðlum. Þá birtist grein á sósíalíska fréttamiðlinum Samstöðin.is þar sem því er haldið fram að einn þriggja leikstjóra myndarinnar. Bosse lindqvist og fleiri sem skráðir eru fyrir myndinni, svo sem Þórður Snær Júlíusson, blaðamaður á Heimildinni, sem er titlaður ráðgjafi við gerð myndarinnar, séu ósáttir við að nöfn þeirra séu í kreditlista myndarinnar. Við ræðum við Bosse, Þórð Snæ og Margréti Jónasdóttur leikstjóra myndarinnar.
Katrín Helga Ólafsdóttir, tónlistarkona, fjallar um Færeyjar og færeyska grasrótartónlistarsenu í tveimur pistlum.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026