Pólitík og dauði á Feneyjatvíæringnum, hubris og ate

· Menning & listir

Það er yfirleitt spennuþrungið andrúmsloft þegar styttist í Feneyjatvíæringinn, líklega nafntoguðustu myndlistarhátíð heims. Nú er aðeins einn mánuður í að hátíðin hefjist 9. maí en hún stendur fram í nóvember, og allt virðist á suðupunkti. Pólitíska ástandið í heiminum hefur smitast inn í hátíðina þetta árið svo um getur: Ísrael, Rússland, Ameríka og já svo er aðalsýningarstjórinn dáinn. Við fjöllum um myndlist og pólitík í Feneyjum í Lest dagsins og ræðum við Ólaf Ólafsson myndlistarmann um hátíðina.

Einar Már Jónsson sendir svo pistil frá París. Hann er að máta forngrísku hugtökin hubris og ate við samtímann.

Lestin

Úr hlaðvarpinu

Lestin

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Lestin