Nýr samfélagsmiðill og tónlistin í Ormstungu
Hvers vegna að búa til nýjan samfélagsmiðil? Hvað er að hinum? Og hvað er að netinu? Una Schram ræðir við stofnanda Perfectly Imperfect, samfélagsmiðils sem ætlar sér að bjarga okkur frá netinu.
Söngleikurinn Ormstunga var frumsýndur síðastliðinn laugardag í Þjóðleikhúsinu. Sýningin, sem er byggð á Gunnlaugs sögu Ormstungu, varð upphaflega til sem nemendaleikrit Hafsteins Níelssonar. Hafsteinn og Óliver Þorsteinsson, handrits-, texta-, og tónlistarhöfundar leikritsins, ræddu við Jóhannes Bjarka Bjarkason um tónlistina í verkinu og líkindin milli kveðskapar og rapps.
Og svo heyrum við pistil eftir Hallveigu Kristínu Eiríksdóttur sem fjallar um fyrstu reglubók handboltans og föður íþróttarinnar, hinn danska Holger Nielsen.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026