Óhugsandi hlutir, Mergur og Satu Rämö

· Menning & listir

Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, veltir fyrir sér óhugsandi hlutum. Það er óhugsandi að standa uppi á Bolafjalli og horfa yfir til Bandaríkjanna, þangað til það er það ekki.

Mergur, nýtt íslenskt sviðs og tónverk, verður frumsýnt í Tjarnarbíó á Föstudag. Lestin kíkir á æfingu og Katrín Lóa, leikstjóri, svarar því hvers vegna það var nauðsynlegt að gera kórverk um það sem er ógeðslegt og fyllir okkur skömm.

Satu Råmö er stödd í Finnlandi, á leið á frumsýningu á sjónvarpsþáttum annars vegar og hinsvegar leikriti, sem byggt er á bókum eftir hana. Satu býr á Ísafirði, eins og skálsdsagnapersónan Hildur, Satu skrifar sögurnar og Hildur, leysir glæpi.

Lestin

Úr hlaðvarpinu

Lestin

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Lestin