Wuthering Heights, Sérstæðan, fjörbaugsgarður
Í þættinum í dag verður rýnt í Wuthering Heights, Fýkur yfir hæðir, nýja kvikmyndaaðlögun þessarar klassísku skáldsögu Emily Brontë. Það er Emerald Fennel sem skrifar handritið og leikstýrir og hefur myndin vakið mikið umtal, og sitt sýnist hverjum: kynþokkafull eða bara kjánaleg, um það er deilt. Það er hjartaknúsarinn Jacob Elordi sem fer með hlutverk Heathcliffs og Margot Robbie leikur Cathy. Kolbeinn Rastrick fellir dóm sinn í Lestinni í dag.
Við fræðumst svo um Sérstæðuna, dansverk um framtíð án líkama. Rósa Ómarsdóttir danshöfundur hefur í rúman áratug reynt að færa manneskjuna úr miðja dansverka sinna, og núna já, er mannslíkaminn algjörlega fjarverandi - því þannig er auðvitað framtíðin sem blasir við okkur, heilanum verður bara hlaðið upp í skýið og við getum losnað við allan líkamlegan sársauka, þrár og langanir.
Svo er það pistill frá rithöfundinum Eiríki Erni Norðdahl. Hann er að velta fyrir sér fjörbaugsgarði og nýjum útlendingalögum.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026