Er Slappið slappt? Næturvaktin sett á svið, BAFTA-fréttir
Getur Slapp verið appið sem bjargar okkur? Tveir æskuvinir hafa stofnað nýjan samfélagsmiðil sem er einungis fyrir íslendinga og þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn á hann. Þannig ekki er hægt að koma þar fram undir huldu höfði. En hvernig er að nota þennan miðil? Hvað virkar og hvað virkar ekki? Við veltum fyrir okkur kostum og hindrunum með Reyni Ólafssyni, álitsgjafa Lestarinnar.
Komin eru 20 ár síðan Næturvaktin, einn ástælasti íslenski sjónvarpsþátturinn, var sýndur í sjónvarpi. Nú sjá MR-ingar fyrir sér að setja hann upp í leikriti Herranætur í vor, en mörg í leikhópnum voru ekki fædd þegar þættirnir voru sýndir.
Og við förum yfir fréttir af BAFTA-verðlaununum. Hverjir voru sigurvegarar kvöldsins og hvað var ritskoðað og hvað ekki.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026