Pólitík á Berlinale, Hamnet gæti verið mynd ársins
Það er verið að rífast um Palestínu og pólitík á kvikmyndahátíðinni Berlinale. Það var þýski leikstjórinn Wim Wenders sem lét fyrstu umdeildu ummælin falla í þeirri rökræðu. Við rekjum atburðarrásina og um hvað er tekist á um.
Hamnet í leikstjórn Chloé Zhao gæti verið mynd ársins. Myndin er byggð á samnefndri bók eftir Maggie O'Farrel, sem er söguleg skáldsaga um sonarmissi Shakespeare og hvernig það varð kveikjan, sársaukinn, að harmleiknum Hamlet. Við ræðum þessa mynd í þaula við Ölmu Mjöll Ólafsdóttur, Helgu Dögg Ólafsdóttur og Kolfinnu Nikulásdóttur, sem voru snortnar yfir myndinni.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026