Bully, Undir Ísnum, Jóhanna af Örk, fyrsta íslenska útvarpsstöðin

· Menning & listir

Framkoma Kanye West síðustu misseri hefur verið einhvers konar lifandi gjörningur. Svo segir Davíð Roach Gunnarsson tónlistargagnrýnandi Lestarinnar. Hann ætlar að rýna í tólftu breiðskífu brjálaða snillingsins Kanye West, Bully.

Við fáum svo dóma um tvær mjög ólíkar nýjar íslenskar kvikmyndir. Undir Ísnum er spennumynd með strákunum úr popptónlistarhópnum Tónhylur í aðalhlutverki, en Jóhanna af Örk er tilraunakennd mynd eftir Hlyn Pálmason.

Við kynnum okkur sögu fyrstu íslensku útvarpsstöðvarinnar H.F. Útvarp sem Otttó B. Arnar kom á fót fyrir 100 árum síðan, en útsendingar hófust í mars 1926. Við kíkjum á sýningu í Loftskeytastöðinni þar sem þessari sögu eru gerð skil. Viðmælendur eru þau Anna Diljá Sigurðardóttir, sýningarstjóri, og Sigurður Harðarson rafeindavirki og útvarpsáhugamaður.

Lestin

Úr hlaðvarpinu

Lestin

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Lestin