Taylor veldur vonbrigðum, M Can og götudans-einvígi
Í síðustu viku kom út nýjasta plata Taylor Swift, Life of a Showgirl. Að venju var mikil eftirvænting eftir nýrri tónlist frá þessari skærustu poppstjörnu samtímans. Viðbrögðin hafa hins vegar ekki verið á einn veg, dómar frekar neikvæðir og sumir Swifties - sem eru þekktir fyrir að standa við bakið á sinni konu í blíðu og stríðu - hafa orðið fyrir vonbrigðum. Nína Hjálmarsdóttir, Swiftie og sviðslistakona, er ein þeirra sem er svekkt með sýningarstúlkuna. Við ræðum við Nínu.
Rapparinn M Can hefur verið hálfgerður huldumaður í íslenskri rappsenu undanfarin fimm ár, en hann hefur gert tónlist með Birgi Hákoni og Yung Nigo Drippin svo einhverjir séu nefndir. Hann hefur tengingu við Tyrkland, Bretland og Ísland og rappar á ensku. Þórður Ingi Jónsson hitti á M Can og forvitnaðist um ferilinn og fyrstu plötuna hans, Paint a Picture.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026