Lífvana leikhús? Ásgeir H. Ingólfsson kvaddur, Masaya Ozaki
Við kveðjum skáldið, gagnrýnandann og menningarblaðamanninn Ásgeir H. Ingólfsson sem lést eftir snörp veikindi 25. janúar síðastliðinn, aðeins 48 ára gamall. Ásgeir var reglulegur gestur í Lestinni með pistla um kvikmyndir og kvikmyndahátíðir. Við heyrum brot úr nokkrum pistlum og ljóðalestri Ásgeirs.
Við veltum fyrir okkur stöðu leikhússins á Íslandi árið 2025. Á næstu vikum ætlar Lóa að ræða við viðmælendur sem koma sviðslistum við - um framtíð sviðslista - Hvernig lítur framtíð leikhússins út? Hvernig getur leikhús farið inn í þá framtíð? Hvað er listrænt spennandi? Hvert er hlutverk gagnrýnenda? Hvernig náum við ungu fólki í leikhús? Og af hverju ætti ungt fólk að fara í leikhús? Af hverju að fara í leikhús yfirhöfuð? Rannsóknin hefst á samtali við sviðslistamann sem hætti í sviðslistum, Karl Ágúst Þorbergsson.
Við ræðum svo við japanska tónlistarmanninn Masaya Ozaki sem býr og starfar í Reykjavík. Þórður Ingi Jónsson spjallaði við hann eftir tónleika í kjallara Hörpu á Myrkum músíkdögum.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026