Bergsveinn Birgisson byggir hlöðu á Ströndum
Bergsveinnn Birgisson gaf á dögunum út bókina Hlaðan: Þankar til framtíðar. Hann hefur áður gefið út bækurnar Svar við bréfi Helgu, Landslag er aldrei asnalegt, Geirmundar saga heljarskinns svo eitthvað sé nefnt. Hlaðan er eins konar bréf sem hann skrifar til dóttur sinnar á meðan hann endurbyggir hlöðu afa síns á Ströndum. Á sama tíma veltir hann fyrir sér stöðu mannsins í heiminum og hvernig við skiljum okkur sjálf - og þar er það arfleifð húmanismans sem hann sækir mest í og ekki síst þýski 18. Aldar hugsuðurinn Friedrich Schiller. Hann flakkar semsagt milli heimspeki og hlöðugerðar.
Þegar líður á bókina þá kemur að hugleiðingum um tæknina og hvernig hún er að breyta mannskilningi okkar - snjalltæki, samfélagsmiðlar og gervigreind. Þarna koma hugmyndafræðingar kísildalsins við sögu: Peter Thiel, René Girard, Marc Andreessen og fleiri.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026