Vilja kjósendur bara láta skemmta sér? Bókin, gangvirki Cannes

· Menning & listir

Hvað gerist á kvikmyndahátíðinni í Cannes? Grímar Jónsson og Sara Nassim, framleiðindur, eru stödd í Frakklandi og þekkja hátíðina út og inn. Við fáum að skyggnast inn í gangvirki Cannes og komast að því hvað framleiðendur gera þar.

Eiríkur Örn Norðdahl veltir fyrir sér bókinni og blikkandi ljósi dópamínvélarinnar. Hvert er hlutverk rithöfundarins, á hann að vera í samkeppninni við símana og Netflix?

Pétur Ólafsson er annar tveggja þáttastjórnanda hlaðvarpsins Korter í kosningar, nú er korter í kosningar og við veltum fyrir okkur hvað hefur einkennt þessa kosningabaráttu.

Lestin

Úr hlaðvarpinu

Lestin

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Lestin