Drake popplagakrufning, aðdáendur Ávaxtakörfunnar, biðröðin

· Menning & listir

Drake er hratt og örugglega að jafna sig eftir rappbardagann við Kendrick Lamar fyrir tveimur árum. Í vikunni gaf hann ekki út eina endurkomuplötu heldur þrjár. Friðrik Margrétar Guðmundssson hjálpar okkur að kryfja einn slagara af plötunum þremur, Janice STFU. The Sopranos, Lykke Li og trapp-taktar frá Atlanta eru meðal þess sem poppmeinafræðingurinn veiðir upp úr laginu.

Söngleikurinn Ávaxtakarfan á sér lítinn en harðan hóp erlendra aðdáenda, sem teikna myndir af persónunum, pæla í tónlist og boðskap leikritsins. Fríða Þorkelsdóttir, netblaðamaður Lestarinnar, segir frá.

Eiríkur Örn Norðdahl, rithöfundur, er í biðröð en veit ekki hvað hann ætlar að gera þegar hann kemst á leiðarenda.

Lestin

Úr hlaðvarpinu

Lestin

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Lestin