Íslendingar í Cannes, línuleg saxskrá, Palantir tíska
Við ræðum við nokkra íslendinga sem eru staddir í Cannes í ólíkum erindagjörðum, Dögg Mósesdóttir, framleiðandi, sem er að kynna myndina Eyríki. Ása Baldursdóttir og Hrönn Sveinsdóttir úr Bíó Paradís, sem eru að horfa á myndir og funa og velja hvað verður á dagskrá á komandi mánuðum í eina listabíói landsins. Við fræðumst um plönin þeirra og förum yfir nokkur mál er varða keppnina um Gullpálmann.
Hera Guðmundsdóttir fer nokkrum sinnum á ári til Parísar að sjá nýjustu tísku, í síðustu heimsókn sinni til Parísar kom hún auga á alveg nýja týpu af tískuáhugamanni, týpu sem er algengari í Kísildalnum en á tískupöllum Parísar.
Svo ræðum við við tónlistarmanninn Tuma Torfason, sem heldur tónleika í Iðnó á sunnudaginn, en með nokkuð sérstöku þema. Tumi, ásamt fleiri saxófónleikurum, mun flytja þekkt útvarps-og sjónvarpsstef.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026