Fjord fær Gullpálmann, Veröld ný og góð, 20 og eitthvað

· Menning & listir

Kvikmyndin Fjord, í leikstjórn rúmenska leikstjórans Christan Mungiu, hlaut Gullpálmann um helgina. Hún stóð upp úr að mati dómnefndar af þeim 22 myndum sem voru í aðalkeppninni í ár. Búist er við að myndin muni skapa miklar umræður þegar hún fer í almenna sýningu, en í henni verður strangtrúuð rúmensk/norsk fjölskylda fyrir barðinu á norsku barnaverndarnefndinni. Myndin er í raun byggð á máli sem fór hátt í norskum fjölmiðlum fyrir 10 árum.

Einar Már Jónsson, rithöfundur, flytur okkur pistil frá París, að þessu sinni um framtíðarbókmenntir og kjarnsæi.

Brynja Hjálmsdóttir sjónvarpsgagnrýnandi Lestarinnar rýnir í nýja íslenska grínþætti sem sýndir eru á RÚV og heita 20 og eitthvað.

Lestin

Úr hlaðvarpinu

Lestin

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Lestin