Mat Dryhurst, Midillinn.com, fótboltabullur og útlendingar
Fyrir tveimur vikum tókum við upp Lestina í lifandi flutningi með áhorfendum í Iðnó. Þá sögðum við frá sýningunni Strange Rules sem var opnuð í Feneyjum í maí, sýning sem tekst á við nýja tækni og kynnir til leiks hugtakið reglulist, protcol-art. Í þætti dagsins ræðum við nánar við einn sýningarstjóranna, breska listamanninn Mat Dryhurst. Við ræðum um regluverk heims, tvíhöfða orma og höfundarétt á tímum gervigreindar.
Við leitum svo uppi íslenska protcol-list og ræðum við aðstandendur grínfréttasíðunnar og samfélagsmiðilsins, Midillinn.com. Þetta eru listamennirnir Þórður Hans Baldursson og Kristján Thorlacius Finnsson.
Einar Már Jónsson sendir okkur svo pistil frá París um fótboltabullur, útlendingaandúð og ömmu sem var borin á kóngastól milli gatna í miðjum óeirðum.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026