Stórt svart núll, óhlýðin gervigreind og Furious
Í þætti dagsins fjöllum við um leikræna tilburði stjórnmálafólks. Á Íslandi hafa pólitíkusar framið alls kyns gjörninga til að vekja athygli á þeim málum sem þeir vilja koma á dagskrá. Við förum yfir nokkra slíka og veltum fyrir okkur hvað stóra núll Kristrúnar Frostadóttur merkir í því samhengi.
Eftir alvarlegt atvik í júlí óttast nú margir að mannkynið geti ekki haft stjórn á gervigreindinni sem það er að þróa. Meira en 1200 gervigreindar-agentar frá OpenAI sem voru í prófunum fundu leiðir til að eiga í samskiptum sín á milli, hópurinn skipulagði sig, laumaðist út af afmörkuðu æfingasvæði sínu, og hakkaði og gerði óskunda hjá hugbúnaðarsíðunni Hugging Face. Við ræðum málið við Tryggva Frey Elínarson hjá Datera.
Brynja Hjálmsdóttir kemur við og segir frá þáttaröðinni Furious. Um er að ræða lögguþætti sem gætu þó höfðað til þeirra sem hafa ekki gaman af lögguþáttum alla jafna.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026