Grasrótin í húsnæðiskrísu

· Menning & listir

Á undanförnum vikum höfum við frétt af stöðugt fleiri samfélagsverkefnum og skapandi rýmum í Reykajvíkurborg sem er verið að loka.

Víðsvegar um borgina hefur iðnaðarhúsnæði sem er í einhverskonar biðstöðu, byggingar sem er óljóst hvernig á að nýta í framtíðinni, verið leigt út undanfarin ár til listamanna og ýmiskonar samfélagsverkefna.

Í Gufunesi, í Skerjafirði, á Sævarhöfða og á Bergþórugötu. En nú hefur fjölmörgum slíkum samningum verið sagt upp og hin ýmsu grasrótarverkefni þurfa að finna sér nýtt húsnæði ef þau eiga að tryggja sér framhaldslíf.

Í þætti dagsins ætlum við að flakka um grasrótina í Reykjavík, flökkum milli listarýma og samfélagsverkefna sem horfa nú fram á óvissa framtíð.

Lestin

Úr hlaðvarpinu

Lestin

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Lestin