Njálsbrenna í myndasögu, veitingastaðir á brauðfótum, RIFF

· Menning & listir

Nú á dögunum kom út á bók fyrsta íslenska myndasagnaserían. En það var myndasaga byggð á Njálssögu - fjallaði um njálsbrennu og hefnd Kára. Myndirnar gerði teiknarinn Halldór Pétursson og birtust þær vikulega í Lesbók Barnanna, fylgiriti morgunblaðsins árin 1959 og 60. En nú loksins er hefur þetta brautryðjendaverk verið tekið saman og gefið út á bók. Við ræðum við ritstjórana Jón Karl Helgason og Bjarni Hinriksson.

Saga veitingarekstrar á Íslandi er fremur stutt og kannski umfram allt saga af fallvaltleika og ótryggu rekstrarumhverfi. Björn Teitsson heldur áfram að flytja okkur pistla um matarmenningu. Og að þessu sinni fjallar hann um veitingahúsið - athyglisverðar orðsifjar, Meg Ryan og kjúlingur í körfu koma meðal annars við sögu í pistlinum.

Við byrjum á alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst á morgun. Við flettum í bæklingnum og ræðum meðal annars Club Kid, Amicar, The Siege of Paradise svo einhverjar myndir séu nefndar.

Lestin

Úr hlaðvarpinu

Lestin

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Lestin