Meme í popplögum, fjallaspenna á RIFF, aðgengileiki á internetinu,
Væntanlegt dómsmál vekur upp spurningar um höfundarétt og persónuvernd. Söngvaranum Elvari hefur verið stefnt fyrir að nota hljóð úr vinsælu myndbandi þar sem tvær stelpur rífast harkalega um mann sem heitir Elvar. Önnur þeirra leitar nú réttar síns, en hún er ekki sátt við að rödd sín hljómi í laginu. Við skoðum fleiri svipuð dæmi, bæði úr íslenskri og erlendri tónlist.
Afdrifarík ferð John Snorra Sigurjónssonar og fleiri fjallagarpa á tind K2 veturinn 2021 er til umfjöllunar í opnunarmynd RIFF í ár. Við rýnum í heimildarmyndina The Last First: Winter K2. Við rýnum einnig í La Pieta, Yön lapsi (eða Barn Næturinnar) og Dissociated Me.
Við lifum stóran hluta tilveru okkar í tækjum og stafrænum rýmum, en mörg þeirra er ekki sérstaklega aðgengileg fólki með fatlanir. Aðgengileiki í hönnun hins stafræna heims skiptir æ meira máli. Við ræðum þetta og fleira við Irene Pereyra, einn stofnenda hönnunarstofunnar Anton & Irene, sem er hér á landi vegna alþjóðlegu hönnunarráðstefnunnar AGI Open sem fram fer í lok vikunnar. Spunagreindarpizzu-app og mikilvægi kjarnorku koma einnig við sögu.
Fleiri þættir af Lestin
- Skortur á skorti, Dreymendur og draumgjafar, Kumbíavík6. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Alaska 1867 er innblásin af vatni og járni, verðlaunamyndir RIFF5. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026
- Íslensk síma-þáttaröð, slefað yfir Skarsgaard og meira RIFF1. október 2026