Lesandinn Kristín Ásgeirs,Vinkill vikunnar og Bernskubrek í Kópvogi
Bernskubrek í Kópavogi er yfirskrift dagskrár sem Marteinn Sigurgeirsson kennsluráðgjafi og kvikmyndagerðrmaður hefur boðið til núna á fimmtudaginn. Sögur og myndefni frá fyrri tímum í bæjarlífinu verða í sviðsljósinu og þar má nefna samskipti unglinga við herinn á stríðsárunum,fimm drengi í sjávarháska,Skiptistöðina,Pönkgangu um Hamraborg og svo baráttuna milli austurbæjar og vesturbæjar. Við ræðum við Martein hér á eftir.
Vinkillinn frá Guðjóni Helga Ólafssyni, okkar manni í Flóanum,fjallar í dag að stærstu leyti um gamla gríska stríðshetju, nefnilega flotaforingjann Laskarinu Bouboulinu; fyrstu konuna sem hlaut aðmírálstign, árið 1825.
Lesandi vikunnar er svo eigandi veitingastaðarins Yndisauka, Kristín Ásgeirsdóttir sem er mikill bókaormur. Við fáum að vita hvaða bækur hún hefur lesið og hvaða rithöfundar hafa haft áhrif á hana.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-06-10
Cactus Blossoms, The - Mississippi.
Uppáhellingarnir, Sigríður Thorlacius - Kavatína Kristínar (feat. Sigríður Thorlacius).
Fleiri þættir af Mannlegi þátturinn
- Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas6. október 2026
- Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas6. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- Þórir Baldursson föstudagsgestur og kakósúpa rædd í matarspjallinu2. október 2026