Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: mannlegi@ruv.is. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Ragnheiður Gröndal tónlistarkona var föstudagsgesturinn okkar í dag. Hún er jólabarn, fædd 15. desember 1984, og er auðvitað söngkona, píanóleikari og laga- og textasmiður. Hún hóf ung tónlistarnám í Tónlistarskóla Garðabæjar, fyrst á blokkflautu og svo á píanó. Hún lauk 7 stigum í klassískum píanóleik og eftir það lá leiðin í Tónlistarskóla FÍH þar sem hún hóf nám í jazzsöng og lauk burtfararprófi vorið 2005. Samhliða söngnáminu tók hún 7 stig í jazzpíanóleik. Ragnheiður hefur síðan verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi og sent frá sér allavega 10 sólóplötur. Við fórum um víðan völl með Ragnheiði í dag og fengum svo að heyra lifandi flutning þar sem eiginmaður hennar Guðmundur Pétursson kom og spilaði á gítar í beinni. Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag var spjallið á almannavarnanótum í kjölfarið á átaki Almannavarna og Rauða krossins, 3dagar.is og spáðum aðeins í dósamatinn sem okkur er ráðlagt að hafa í viðlagakassanum góða. Hvaða dósamatur verður fyrir valinu? Tónlist í þættinum: Ástarorð / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) Alveg sama hvað / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) Er líða fer að jólum / Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson lifandi flutningur í hljóðveri nr. 6 (Gunnar Þórðarson, texti Ómar Ragnarsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Opni leikskóli Memmm hlaut hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2026 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum nú á dögunum. Opni leikskóli Memmm var stofnaður árið 2021 og býður barnafjölskyldum upp á gjaldfrjálsan og opinn vettvang þar sem börn fá tækifæri til að leika, læra og þroskast í öruggu og örvandi umhverfi. Á sama tíma gefst foreldrum tækifæri til að mynda félagsleg tengsl, deila reynslu og fá stuðning í uppeldishlutverkinu. Starfsemin fer fram í bókasöfnum og samfélagshúsum í Reykjavík og Hafnarfirði og hefur vaxið jafnt og þétt. Í dag eru heimsóknir barna og fullorðinna um 10.000 á ári. Helga Hreiðarsdóttir og Kristín Stefánsdóttir komu og sögðu betur frá Memmm. Kannastu við að ganga út frá lækninum og muna þá fyrst eftir því sem þú ætlaðir helst að spyrja um? Hilda Hrönn Guðmundsdóttir, sérnámslæknir í heimilislækningum, vinnur að lausn sem á að hjálpa fólki að undirbúa læknistímann. Hugmyndin er sú að fólk geti undirbúið sig í ró og næði heima, svarað spurningum um heilsufarsvandann, hvað valdi þeim áhyggjum og hverju það vilji koma á framfæri. Þannig fá bæði læknir og sjúklingur betri yfirsýn og geta einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli í viðtalinu. Við ræddum við Hildu um þetta í dag. Jónatan Garðarsson kom svo til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag var komið að Ingibjörgu Þorbergs en hún er eitt af stóru nöfnunum í íslenskri tónlistarsögu, hún söng og samdi fjölda þekktra laga og texta sem komið hafa út á ótal plötum, hún átti einnig þátt í að móta íslenskt útvarp með tilliti til barnaefnis og ekki hvað síst í að varða leið kvenna í íslenskri tónlist með framlagi sínu. Jónatan fræddi okkur um feril Ingibjargar í dag. Tónlist í þættinum: Breytir borg um svip / Kristín Lillendahl (Kristín Lillendahl) Tunglið, tunglið taktu mig / Ljósin í bænum (Stefán S. Stefánsson, texti Theódóra Thoroddsen) Á morgun / Alfreð Clausen og Ingibjörg Þorbergs (Ingibjörg Þorbergs) Hin fyrstu jól / Ingibjörg Þorbergs (Ingibjörg Þorbergs, texti Kristján frá Djúpalæk) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Ingibjörg Guðlaug Jónsdóttir stofnaði nýlega bókaútgáfuna Mannkennd á Siglufirði sem sérhæfir sig í barnabókum um fötlunarfjölbreytileika. Hugmyndin kviknaði þegar dóttir hennar, sem er einhverf og langveik og mikill lestrarhestur, fór að spyrja um bækur um börn eins og hana og þær var erfitt að finna. Því tók hún ráðin í eigin hendur. Ingibjörg kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá bókaútgáfunni, en von er á fyrstu bókinni, Lísa og Líó, í byrjun desember en hún er unnin í samstarfi við Einhverfusamtökin. Við fræddumst svo um rannsókn um upplifun háskólamenntaðra sérfræðinga sem eru 65 ára og eldri og eru enn á vinnumarkaði. Fólk sem nálgast hefðbundinn eftirlaunaaldur hefur verið talsvert rannsakað, en minna er vitað um hvernig fólk á aldrinum 65-85 ára upplifir áframhaldandi þáttöku á vinnumarkaði. Hvaða þættir hvetja það og móta vilja og möguleika þeirra til að halda áfram að vinna. Erla Sólveig Kristjánsdóttir, prófessor við Viðskiptafræðideild HÍ og Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent við sömu deild unnu þessa rannsókn og sögðu okkur betur frá henni og fyrstu niðurstöðum hennar í þætti dagsins. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í Vísindaspjallið. Í dag sagði hún okkur nýjar fréttir sem lofa góðu þegar kemur að því að sigrast á sýklalyfjaónæmum bakteríum. Þar koma svokallaðir fagar til sögunnar, en Edda útskýrði þetta að vanda betur fyrir okkur í spjalli dagsins. Tónlist í þættinum: Verum í sambandi / Sprengjuhöllin (Snorri Helgason, Sprengjuhöllin, Bergur Ebbi) Undir dalanna sól / Karlakór Reykjavíkur ásamt Óskari og Pétri Péturssonum (Björgvin Þ Valdimarsson, texti Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum) Joshua Fit the Battle of Jericho / Golden Gate kvartettinn (höf.óþekktur) Eina nótt / Snorri Helgason (Kris Kristofferson, texti Jónas Friðrik Guðnason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Við töluðum við Ara Ólafssyni söngvara, sem keppti fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2018, en hann fór til í London haustið eftir keppnina. Þar lærði hann fyrst klassískan söng, færði sig svo í kjölfar Covid yfir í söngleikjanám og hefur síðustu tvö ár verið á sýningarferðalagi um heiminn með Phantom of the Opera, einni þekktustu og umfangsmestu söngleikjasýningu heims, þar sem hann meðal annars lék óperudrauginn sjálfan. Við fórum með Ara yfir söngferilinn hingað til, frá náminu í London, ferðasögur með óperudrauginn og margt fleira með Ara og einnig sagði hann okkur frá Hátíðartónleikum hans og Dísellu Lárusdóttur sem verða í Norðurljósasal Hörpu 13. desember. Frá 1. október var lyfjafræðingum sem lokið hafa tilskilinni endurmenntun heimilt að bólusetja í apótekum. Það er fyrsta skrefið í átt að því að auka aðgengi almennings að heilbrigðisþjónustu. Álag á heilbrigðiskerfi fara vaxandi víða um heim vegna hækkandi aldurs og aukinnar lyfjanotkunar og hafa Bretland og Kanada til dæmis brugðist við með því að nýta sérþekkingu lyfjafræðinga í auknum mæli. Við töluðum við Sigurbjörgu Sæunni Guðmundsdóttur formann Lyfjafræðingafélags Íslands og Sigríði Pálínu Arnardóttur lyfjafræðing og eiganda Reykjanesapóteks um þessi mál í þættinum í dag. Þær sögðu okkur einnig frá málþinginu Lyfjasúpu sem fram fór í síðustu viku um lyfjanotkun eldra fólks en í Reykjanesapóteki hefur verið boðið uppá þjónustu við að fara yfir lyfjanotkun og hvort lyf fari t.d. illa saman við inntöku ofl. Tónlist í þættinum: Ég er á leiðinni / Brunaliðið (Magnús Eiríksson) Heim / Ari Ólafsson (Þórunn Erna Clausen) Án þín - með þér / Sigríður Thorlacius og Heiðurspiltar (Jón Múli og Jónas Árnasynir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR