Aðgengi að heyrn, heimsmálin í Vinkli dagsins og lesandi vikunnar
"Aðgengi að heyrn" er yfirskrift ráðstefnu á vegum Heyrnarhjálpar sem haldinn verður 10.október. Áætlað er að heyrnarskertir á Íslandi séu um 20% af þjóðinni eða um 74.000. Eitt af því sem ómeðhöndluð heyrnarskerðing getur valdið er snemmbúin elliglöp, þunglyndi og félagsleg einangrun. Þessu vill Heyrnarhjálp breyta og vilja að heyrnarskertum standi til boða heyrnartæki og þjónusta án tilits til stéttar né stöðu. Halla Þorkelsson formaður Heyrnarhjálpar og hún kom til okkar í dag.
Við fengum sendingu frá Guðjóni Helga Ólafssyni sem í dag bar vinkilinn upp að heimsmálunum.
Lesandi vikunnar var á sínum stað. Í dag kom til okkar Stefán Þór Sæmundsson íslenskukennari við Menntaskólann á Akureyri. Hann sagði okkur frá bókum sem hann hefur verið að lesa undanfarið og bókum sem hafa haft áhrif á hann í gegnum tíðina.
Fleiri þættir af Mannlegi þátturinn
- Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas6. október 2026
- Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas6. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- Þórir Baldursson föstudagsgestur og kakósúpa rædd í matarspjallinu2. október 2026