Þórhildur Sunna föstudagsgestur og Albert gestur í matarspjallinu
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, mannréttindalögfræðingur, fyrrverandi þingmaður og þingflokksformaður Pírata var föstudagsgestur Mannlega þáttarins að þessu sinni. Þórhildur er nýtekin við stöðu framkvæmdastjóra alþjóðlegu samtakanna Courage International, samtök sem helga sig baráttunni fyrir frjálsu flæði upplýsinga, tjáningarfrelsi, fjölmiðlafrelsi og friðhelgi einkalífsins. Við fórum með Þórhildi Sunnu aftur í tímann í gegnum erfiða reynslu í æsku, þar sem réttlætiskenndin kviknaði og fórum svo með henni á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag, með viðkomu í Þýskalandi, Hollandi og Belgíu.
Matarspjallið hófst svo að nýju í dag þegar Sigurlaug Margrét kom með gest með sér í hljóðstofu, gest sem hún minnist oft á í matarspjallinu, Albert Eiríksson. Albert hefur nýlokið við að skrifa matreiðslubók um einfalda og holla rétti og hann kom ekki tómhentur.
Tónlist í þættinum í dag:
Farfuglarnir / Ragnheiður Gröndal (Jóhann Helgason, texti Þórarinn Eldjárn)
It’s a Fire / Portishead (Adrian Utley, Beth Gibbons & Geoff Barrow)
Lady K / Emilíana Torrini (Emilíana Torrini og Simon Byrt, texti Emilíana Torrini)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fleiri þættir af Mannlegi þátturinn
- Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas6. október 2026
- Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas6. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- Þórir Baldursson föstudagsgestur og kakósúpa rædd í matarspjallinu2. október 2026