Heimir Már föstudagsgestur og matarspjall frá Kraká
Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni var Heimir Már Pétursson fréttamaður á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Heimir hlaut blaðamannaverðlaun ársins 2023 fyrir ítarlega og vandaða umfjöllun um kjaramál. Heimir hefur unnið sem blaðamaður hjá Þjóðviljanum, Bændablaðinu, Helgarblaðinu og Norðurlandi. Hann á einnig tónlistarferil og hefur verið textahöfundur. En við auðvitað förum aftur í tímann með Heimi Má, fáum hann til að segja okkur frá æskuslóðunum á Ísafirði, tónlistinni, námsárunum og fleiru á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag.
Svo var það matarspjallið, Sigurlaug Margrét var í þetta sinn stödd í Kraká í Póllandi og hún talaði auðvitað um Prins Polo en líka dumplings, snitzel, súrar gúrkur, berlínarbollur og pretzel. Og svo sagði hún frá heimsókn sinni í safnið í Auscwitz.
Tónlist í þættinum:
Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Verard, Rocco Granata, texti Jóhanna Erlings Gissurardóttir)
Democracy / Leonard Cohen (Leonard Cohen & Jeff Fisher)
Tíminn líður / Hnotubrjótar (Heimir Már Pétursson og Þór Eldon)
UMSJÓN GUNNAR HANSSON
Fleiri þættir af Mannlegi þátturinn
- Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas6. október 2026
- Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas6. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- Þórir Baldursson föstudagsgestur og kakósúpa rædd í matarspjallinu2. október 2026