Með lífið í lúkunum, Listasumar á Akureyri og vísindaspjall um heilann
Við fræddumst um átakið Með lífið í lúkunum hér á eftir. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli þeirri hættu sem fylgir kyrkingartökum, bæði sem hluti af kynlífi eða sem hluti af öðru ofbeldi. Ranghugmynda hefur gætt um slíkt, en rannsóknir leiða í ljós meiri hættu en áður hefur verið talið. Hver einasta sekúnda sem flæði blóðs er heft hefur áhrif á heilann og lítið átak þarf til að valda skemmdum. Ástþóra Kristinsdóttir, sérfræðingur í ofbeldismálum hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, og Drífa Snædal, talskona Stígamóta, komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá.
Stefnumót við fortíðina, svangar ruslaverur og dansiball í göngugötunni er allt partur af Listasumri á Akureyri sem hefst á morgun og stendur til 18.júlí. Við slógum á þráðinn norður og töluðum við Elísabetu Ögn Jóhannsdóttur verkefnastjóra menningarmála hjá Akureyrarbæ.
Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið og í dag talaði um rannsóknir á heilanum og heilaheilsu.
Tónlist í þættinum í dag:
Vor í Reykjavík / Uppáhellingarnir (Andri Ólafsson, texti Þórarinn Már Baldursson)
Ást og friður / Halli Reynis og Vigdís Jónsdóttir (Halli Reynis)
Refur / Svavar Knútur (Svavar Knútur)
Við gengum tvö / Ingibjörg Smith (Friðrik Jónsson og Valdimar Hólm Hallstað)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fleiri þættir af Mannlegi þátturinn
- Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas6. október 2026
- Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas6. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- Þórir Baldursson föstudagsgestur og kakósúpa rædd í matarspjallinu2. október 2026