Ráðstefnan Töfrar tengslanna og Jónatan um Helga Pé
Við fræddumst í þættinum í dag um ráðstefnuna Töfrar tengslanna, sem fór fram á vegum þekkingarseturs BUGL, Barna- og unglingageðdeildar, fyrr í mánuðinum. Mikilvægi tengsla fyrir vellíðan og þroska barna var yfirskrift ráðstefnunnar. BUGL hafði safnað saman fjölbreyttum erindum og fræðsluefni um líðan, þroska og velferð barna og ungmenna auk þess að ráðfæra sig við ungmennaráð, þar sem notendur þjónustunnar fengu að koma að sínum áherslum. Unnsteinn Jóhannsson, verkefnastjóri og ráðgjafi á BUGL og Daðey Albertsdóttir sálfræðingur sem flutti erindið „Ertu að tengja við unglinginn þinn?“ á ráðstefnunni, komu í þáttinn í dag.
Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um okkar frábæra íslenska tónlistarfólk. Í dag talaði hann um Helga Pétursson, Helga Pé, sem lést í nóvember. Helgi stofnaði Ríó tríó ásamt þeim Ólafi Þórðarsyni og Halldóri Fannari árið 1965, en seinna átti Ágúst Atlason eftir að ganga til liðs við sveitina. Helgi spilaði á kontrabassa í sveitinni og söng. Jónatan fór betur yfir feril Helga í þættinum og við heyrðum tvö lög með honum.
Tónlist í þættinum:
Upp á rönd / Hjálmar og GDRN (Guðrún Yr Eyfjörð Jóhannesdóttir og Sigurður Halldór Guðmundsson)
Kvennaskólapía / Ríó tríó (Arlo Guthrie, texti Jónas Friðrik Guðnason)
Þú ert / Helgi Pétursson (Þórarinn Guðmundsson, texti Gestur (dulnefni f. Guðmund Björnsson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fleiri þættir af Mannlegi þátturinn
- Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas6. október 2026
- Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas6. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- Þórir Baldursson föstudagsgestur og kakósúpa rædd í matarspjallinu2. október 2026