Björn Thors föstudagsgestur og matarspjall á gondóla

· Menning & listir

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn og leikstjórinn Björn Thors. Um síðustu helgi var leikritið Nýtt eldhús eftir máli, eftir Friðgeir Einarsson, í leikstjórn Björns frumsýnt í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Við ferðuðumst með Birni aftur í tímann, til námsáranna í Hamrahlíðinni og Hlíðaskóla þar sem kviknaði fyrst á leiklistarperunni í höfði Björns og svo fórum við enn aftar með honum, þangað sem rætur hans liggja í eyjunum í Breiðafirði. Forfeður og formæður, nútíminn, fortíðin og framtíðin með Birni Thors föstudagsgesti í dag.

Svo var auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti á sínum stað. Hún var engu að síður stödd í Feneyjum, líklegast á gondóla, hvaðan hún fræddi okkur um matarmenningu staðarins.

Tónlist í þættinum:

Lífið yrði dans / HLH flokkurinn (erl.lag, texti Laddi, Þórhallur Sigurðsson)
Raddir efans / Prins póló (Svavar Pétur Eysteinsson)
Bambolero / Gipsy Kings

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Fleiri þættir af Mannlegi þátturinn