Íslenski dansflokkurinn, gullmoli úr safni frá 1995 og Gísli lesandi vikunnar
Við héldum áfram yfirreið okkar yfir það sem er að gerast á fjölum leik- og sviðlistahúsanna í vetur. Í þetta sinn var það Íslenski dansflokkurinn, en Lovísa Ósk Gunnarsdóttir er listdansstjóri þar á bæ. Hún sagði okkur frá dansflokknum og dansvetrinum framundan.
Svo fengum við gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn var brotið sem við fengum að heyra frá árinu 1995, úr þætti Þorsteins J. Vilhjálmssonar „Sumar í Héraði“ þar sem hann hafði farið um sveitina með upptökutæki og rætt við fólk í Dölunum. Þar heyrðum við samtal þriggja kvenna sem eru allar um nírætt þar sem þær sitja og hnýta heklubönd og karpa um allskonar ótengda hluti, peninga, kleinubakstur og skaphöfn hvorrar annarrar. Þetta voru þær Steinunn Gunnarsdóttir Grænumýrartungu í Hrútafirði, Margrét Oddsdóttir Jörfa í Haukadal og Gísla Sigríður Kristjánsdóttir frá Teigi í Hvammssveit.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Gísli Hvanndal íslenskukennari og meðlimur í leshringnum Austurlandahraðlestri. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Gísli talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Svanvængjuð þrá e. Valdimar Tómasson
Næsta stríð e. Ásgeir H. Ingólfsson
Bók vikunnar e. Snæbjörn Arngrímsson
Íslensk óhamingja e. Bragi Páll Sigurðarson
bækur Steinars Braga og þjóðsagan Djákninn á Myrká
Tónlist í þættinum:
Komdu með / Ríó Tríó (Gunnar Þórðarsson, texti Jónas Friðrik Guðnason)
Svantes lykkelige dag / Povl Dissing (Benny Andersen)
Nótt / Friðrik Ómar Hjörleifsson (Gunnar Þórðarsson, texti Þorsteinn Erlingsson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fleiri þættir af Mannlegi þátturinn
- Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas6. október 2026
- Hugmyndir um karlmennsku, námskeið um starfslok og Jónatan Garðars um Megas6. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- MR 180 ára, tilnefningar til Menntaverðlauanna og Elísabet Katrín lesandi vikunnar5. október 2026
- Þórir Baldursson föstudagsgestur og kakósúpa rædd í matarspjallinu2. október 2026