Opni leikskólinn Memmm, lausn til að undirbúa læknistímann og Jónatan um Ingibjörgu Þorbergs
Opni leikskóli Memmm hlaut hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2026 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum nú á dögunum. Opni leikskóli Memmm var stofnaður árið 2021 og býður barnafjölskyldum upp á gjaldfrjálsan og opinn vettvang þar sem börn fá tækifæri til að leika, læra og þroskast í öruggu og örvandi umhverfi. Á sama tíma gefst foreldrum tækifæri til að mynda félagsleg tengsl, deila reynslu og fá stuðning í uppeldishlutverkinu. Starfsemin fer fram í bókasöfnum og samfélagshúsum í Reykjavík og Hafnarfirði og hefur vaxið jafnt og þétt. Í dag eru heimsóknir barna og fullorðinna um 10.000 á ári. Helga Hreiðarsdóttir og Kristín Stefánsdóttir komu og sögðu betur frá Memmm.
Kannastu við að ganga út frá lækninum og muna þá fyrst eftir því sem þú ætlaðir helst að spyrja um? Hilda Hrönn Guðmundsdóttir, sérnámslæknir í heimilislækningum, vinnur að lausn sem á að hjálpa fólki að undirbúa læknistímann. Hugmyndin er sú að fólk geti undirbúið sig í ró og næði heima, svarað spurningum um heilsufarsvandann, hvað valdi þeim áhyggjum og hverju það vilji koma á framfæri. Þannig fá bæði læknir og sjúklingur betri yfirsýn og geta einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli í viðtalinu. Við ræddum við Hildu um þetta í dag.
Jónatan Garðarsson kom svo til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag var komið að Ingibjörgu Þorbergs en hún er eitt af stóru nöfnunum í íslenskri tónlistarsögu, hún söng og samdi fjölda þekktra laga og texta sem komið hafa út á ótal plötum, hún átti einnig þátt í að móta íslenskt útvarp með tilliti til barnaefnis og ekki hvað síst í að varða leið kvenna í íslenskri tónlist með framlagi sínu. Jónatan fræddi okkur um feril Ingibjargar í dag.
Tónlist í þættinum:
Breytir borg um svip / Kristín Lillendahl (Kristín Lillendahl)
Tunglið, tunglið taktu mig / Ljósin í bænum (Stefán S. Stefánsson, texti Theódóra Thoroddsen)
Á morgun / Alfreð Clausen og Ingibjörg Þorbergs (Ingibjörg Þorbergs)
Hin fyrstu jól / Ingibjörg Þorbergs (Ingibjörg Þorbergs, texti Kristján frá Djúpalæk)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Fleiri þættir af Mannlegi þátturinn
- Ragnheiður Gröndal föstudagsgestur og dósamatur í matarspjallinu20. nóvember 2026
- Ragnheiður Gröndal föstudagsgestur og dósamatur í matarspjallinu20. nóvember 2026
- Opni leikskólinn Memmm, lausn til að undirbúa læknistímann og Jónatan um Ingibjörgu Þorbergs19. nóvember 2026
- Opni leikskólinn Memmm, lausn til að undirbúa læknistímann og Jónatan um Ingibjörgu Þorbergs19. nóvember 2026
- Gefur út bækur um ósýnilegu börnin, rannsókn um 65 ára og eldri á vinnumarkaði og vísindaspjallið með Eddu18. nóvember 2026
- Gefur út bækur um ósýnilegu börnin, rannsókn um 65 ára og eldri á vinnumarkaði og vísindaspjallið með Eddu18. nóvember 2026