13. Margrét Hugrún: Sumir vaxa best utan girðingarinnar
Margrét Hugrún Gústavsdóttir ólst upp hjá kornungri en sjálfstæðri móður á sjöunda áratug síðustu aldar. Þær fluttu víða sem olli því að hún þurfti að skipta oft um skóla en þannig sankaði hún að sér lífsreynslu og sjónarmiðum sem juku með henni bæði seiglu og sjálfsstæði.
Á unglingsaldri urðu þýðingarmikil tengsl í lífi hennar þegar hún hitti föður sinn í fyrsta sinn en fljótlega eftir það var hún flutt til London. Margrét á mörg líf að baki. Hún sló eftirminnilega í gegn sem Mæja í kvikmyndinni Sódóma Reykjavík en í þættinum segir hún frá því hvernig það æxlaðist allt saman. Á dögunum útskrifaðist Margrét Hugrún með BA próf í mannfræði þar sem hún skrifaði lokaritgerð um stafræna mannfræði en í þættinum útskýrir hún meðal annars hvers vegna við ættum alls ekki að vera á félagsmiðlum eins og Facebook.
Þátturinn er í boði:
Icelandair
Blue Lagoon Skin Science
SkincareLab í Smáralind
Bílasölu Bjössa, Hólshrauni 5
Fleiri þættir af Marta María býður heim
- 30. Dorrit Moussaieff: „Heimurinn minn var fullkominn"5. október 2026
- 29. Lukka Pálsdóttir: Við getum valið að vaxa28. september 2026
- 28. Birgir Jónsson: Ef lífið er bílaleigubíll þá ætla ég að skila mínum útjöskuðum21. september 2026
- 27. Anna Margrét Björnsson: Það þótti ekki fínt að berast á14. september 2026
- 26. Kristín Agnarsdóttir: Allar góðu ákvarðanirnar7. september 2026
- 25. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson: Ég er í ástarsambandi með sjálfum mér31. ágúst 2026






