20. Vilborg Guðnadóttir: Drifkraftur lífsins er að sjá aðra vaxa
Vilborg Guðnadóttir geðhjúkrunarfræðingur var send í fóstur þegar hún var eins og hálfs árs því móður hennar fékk berkla. Hún flutti ekki aftur heim fyrr en hún var á sjöunda ári en þá var landslagið breytt. Hún byrjaði að safna sér fyrir íbúð þegar hún var 9 ára því hún upplifði að það væri engu að treysta. Þetta hafði mótandi áhrif og hefur Vilborg haft það að ævistarfi að hjálpa fjölskyldum í vanda. Í fyrra var hún sæmd heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Þegar hringt var í hana frá forseta skrifstofunni hélt hún að forsetaembættið þyrfti handleiðslu og það hrökk upp úr henni hvers vegna það væri verið að verðlauna fólk fyrir að vinna vinnuna sína. En þannig er Vilborg. Hún er félagslegur einfari sem elskar að búa í blokk og með hjarta úr gulli.
Þátturin er í boði Icelandair, Blue Lagoon Skin Science, SkincareLab í Smáralind og Bilasölu Bjössa, Hólshrauni 5.
Fleiri þættir af Marta María býður heim
- 30. Dorrit Moussaieff: „Heimurinn minn var fullkominn"5. október 2026
- 29. Lukka Pálsdóttir: Við getum valið að vaxa28. september 2026
- 28. Birgir Jónsson: Ef lífið er bílaleigubíll þá ætla ég að skila mínum útjöskuðum21. september 2026
- 27. Anna Margrét Björnsson: Það þótti ekki fínt að berast á14. september 2026
- 26. Kristín Agnarsdóttir: Allar góðu ákvarðanirnar7. september 2026
- 25. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson: Ég er í ástarsambandi með sjálfum mér31. ágúst 2026






