132. Hvernig greinum við innsæi frá ótta? (Sársauki, sjálfsþekking, athygli, dómgreind og hegðun). Hrund Gunnsteinsdóttir

· Heilsa, Menntun

Í nýjasta þættinum af Með lífið í lúkunum settist ég niður með Hrund Gunnsteinsdóttur, höfundi, leiðtogaþjálfa, fyrirlesara, frumkvöðli og könnuði.
Hrund hefur um árabil rannsakað innsæið, bæði frá vísindalegu og andlegu sjónarhorni. Hún er meðal annars höfundur bókarinnar InnSæi og leikstjóri samnefndrar heimildarmyndar.
Í þessu áhugaverða samtali förum við víða og veltum meðal annars fyrir okkur:

Hvað er innsæi og hvernig greinum við það frá ótta?
Getum við þjálfað innsæið eins og vöðva?
Hvers vegna erum við svona aftengd okkur sjálfum?
Hvernig hefur innsæið áhrif á heilsu okkar og ákvarðanatöku?
Hvað gerist þegar við treystum öðrum fyrir eigin dómgreind?
Hvernig finnum við jafnvægi milli þess að vera og gera?
Innsæið er oft umfangsmeira og mikilvægara en við höldum.

Við ræðum líka um kulnun, sársauka, sjálfsþekkingu, athygli og mikilvægi þess að skapa rými í lífinu til að hlusta á það sem gerist innra með okkur.
Ein setning frá Hrund situr sérstaklega eftir hjá mér: „Þú ert eina manneskjan í heiminum sem getur verið sérfræðingur í þínu eigin innsæi“
Getur verið að við þurfum ekki alltaf fleiri svör frá umheiminum? Getur verið að við þurfum stundum að gefa okkur tíma til að hlusta betur inn á við?
Ég hvet þig til að hlusta. Þetta er samtal sem gæti fengið þig til að hugsa aðeins öðruvísi um sjálfa/n þig og hvernig þú tekur ákvarðanir í lífinu.

Takk til ykkar sem hlustið og sérstakar þakkir til samstarfsaðila minna sem hafa trúað á þetta verkefni frá upphafi:
🌱  -SPÍRAN. Besti brunch í bænum! Allar helgar milli kl.11-15.
🐘  -VIRKJA. Bókaðu frían 20 mínútna kynningarfund á virkja.is
💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.
💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í gjöf.
Gjafabréf frá einu af þessum fyrirtækjum er tilvalið í jólapakkann!
Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

Með lífið í lúkunum

Úr hlaðvarpinu

Með lífið í lúkunum

HeilsuErla

Allir þættir

Fleiri þættir af Með lífið í lúkunum