Magnús Geir Þórðarson #15
Menningarvaktin er hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Í þætti #15 fær Símon Birgisson til sín Magnús Geir Þórðarson, Þjóðleikhússtjóra. Farið verður yfir hvað gerðist bak við tjöldin á leikvetrinum sem nú er að klárast en óhætt er að segja Þjóðleikhúsið hafi átt sýningar í ár sem hafa bæði vakið athygli og umtal. Óresteia sló í gegn hjá gagnrýnendum og áhorfendum og Ormstunga sannaði að söngleikir þurfa ekki endilega að koma tilbúnir frá útlöndum. Þjóðleikhúsið var einnig í umræðunni í tengslum við skipun óperustjóra en Þjóðaróperan svokallaða endaði í samruna við Þjóðleikhúsið sem verður því miðpunktur óperustarfsemi í landinu næstu árin.
Fleiri þættir af Menningarvaktin
- Valur Grettisson og Ómar Úlfur #1724. september 2026
- Magnús Jochum, Valur Grettisson og Bubbi Morthens #1613. maí 2026
- Egill Heiðar Anton Pálsson #1430. apríl 2026
- Valur Grettisson, Magnús Jochum og Ómar Úlfur #1316. apríl 2026
- Magnús Jochum, Valur Grettisson og Trausti Júlíusson #1227. mars 2026
- Jónas Sen og Finnur Bjarnason #1113. mars 2026
