Menningarvaktin

menningarvaktin

Menning & listir

Menningarvaktin er nýtt hlaðvarp á Vísi þar sem Símon Birgisson fær til sín góða gesti og fer yfir stóru málin í menningarlífi landsins. Menningarvaktin er ómissandi fyrir þá sem vilja heyra um bestu leiksýningarnar, heitustu kvikmyndirnar og tónleikarýni - beint frá einvala hópi gagnrýnenda Vísis. Fylgstu með Menningarvaktinni frá byrjun - hér á Vísi og öllum helstu hlaðvarpsveitum. Við erum á vaktinni fyrir þig.

Menningarvaktin #21 Trölli í Borgó

Í þessum þætti fer Menningarvaktin í saumana á stórsýningunni Trölli stal jólunum í Borgarleikhúsinu. Rætt er um nýjan James Bond, gervigreind í skáldskap og kvikmyndirnar Godzilla Minus Zero og You Can See Everything. Ómar Úlfur rýnir svo í fyrstu plötu þeirra Væb bræðra - Væbout og nýja plötu með tónlist óskarsverðlaunahafans Hildar Guðnadóttur.

Menningarvaktin - Högg og Krummi Björgvinsson

Menningarvaktin fjallar um leikritið Högg í Þjóðleikhúsinu og Púðlusafnið í Tjarnarbíó. Jónas Sen segir frá tónleikum Queens of the Stone Age í Laugardalshöllinni og Ómar Úlfur rýnir í nýja plötu Krumma Björgvinssonar Scavenger of Hope.

Menningarvaktin - Djöflar og Teitur Magnússon

Í þriðja þætti Menningarvaktarinnar í vetur ræða þeir Símon Birgisson og Magnús Jochum Pálsson um leiksýninguna Djöfla sem nú er sýnd í Borgarleikhúsinu og hefur fengið misjafna dóma. Þær ræða einnig hina umdeildu kvikmynd Digger með Tom Cruise. Ómar Úlfur rýnir í nýjustu plötur þeirra Teits Magnússonar og bandaríska tónlistarmannsins Beck.

Magnús Jochum og Valur Grettisson #17

Símon fékk þá Magnús Jochum og Val Grettisson til sín og þeir félagar fóru yfir það helsta í menningarlífinu þessa vikuna

Valur Grettisson og Ómar Úlfur #17

Menningarvaktin fer aftur af stað eftir sumarið. Símon og Valur fara yfir leikárið og Ómar Úlfur mætir með nokkar góðar plötur.

Magnús Jochum, Valur Grettisson og Bubbi Morthens #16

Blaðamennirnir Magnús Jochum og Valur Grettisson mættu til Símonar. Bubbi Morthens kom svo í skemmtilegt spjall um nýjustu plötuna sína.

Magnús Geir Þórðarson #15

Menningarvaktin er hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Í þætti #15 fær Símon Birgisson til sín Magnús Geir Þórðarson, Þjóðleikhússtjóra. Farið verður yfir hvað gerðist bak við tjöldin á leikvetrinum sem nú er að klárast en óhætt er að segja Þjóðleikhúsið hafi átt sýningar í ár sem hafa bæði vakið athygli og umtal. Óresteia sló í gegn hjá gagnrýnendum og áhorfendum og Ormstunga sannaði að söngleikir þurfa ekki endilega að koma tilbúnir frá útlöndum. Þjóðleikhúsið var einnig í umræðunni í tengslum við skipun óperustjóra en Þjóðaróperan svokallaða endaði í samruna við Þjóðleikhúsið sem verður því miðpunktur óperustarfsemi í landinu næstu árin.

Egill Heiðar Anton Pálsson #14

Menningarvaktin er hlaðvarp um allt það helsta í íslenskri menningu. Í þætti #14 fær Símon Birgisson til sín Egil Heiðar Anton Pálsson, borgarleikhússtjóra. Farið verður yfir hvað gerðist bak við tjöldin á leikvetrinum sem nú er að klárast en Egill var skipaður borgarleikhússtjóri síðasta vor og er þetta því fyrsta leikárið hans í þessu hlutverki; sýningar á borð við Moulin Rouge sem sló í gegn og svo Hamlet -ein umdeildasta leiksýning ársins.

Valur Grettisson, Magnús Jochum og Ómar Úlfur #13

Magnús Jochum Pálsson og Valur Grettisson fóru yfir sviðið og Ómar Úlfur mætti á plötuvaktina.

Magnús Jochum, Valur Grettisson og Trausti Júlíusson #12

Símon, Magnús Jochum og Valur fara um víðan völl. Í lok þáttar mætir Trausti Júlíusson og rýnir í nýútgefna jazzplötu.

Þér gæti líka líkað...