389.þáttur. Mín skoðun. 27082021

· Íþróttir

389.þáttur. Mín skoðun. Heil og sæl og velkomin til leiks. Í dag er nóg um að vera. Þórhallur Dan er fyrsti viðmælandinn og við förum yfir PepsiMax deild karla, enska boltann, Meistaradeildina, Ronaldo og svo um viðtal Kastljóss við Guðna Bergsson í gær. Tippari vikunnar er Heimir Eyvindarson texta-og lagahöfundur, meðlimur í hljómsveitinni Á Móti Sól, Liverpool-aðdáandi með meiru. Hann er nýlentur í Liverpool-borg en hann ætlar að fara á leik Liverpool og Chelsea á morgun. Heimir tippar á 5 leiki á Lengjunni ásamt því að við spjöllum um daginn og veginn.  Þá er Andri Steinn Birgisson sérfræðingur minn í Lengjudeildinni á línunni. Andri Steinn fer yfir leiki helgarinnar og eins og svo oft áður, þá er hann ótrúlega getspakur. Njótið helgarinnar.

Mín skoðun

Úr hlaðvarpinu

Mín skoðun

Valtýr Björn

Allir þættir

Fleiri þættir af Mín skoðun