Mín skoðun

Valtýr Björn

Íþróttir

Mín skoðun með Valtý Birni

X977 - Mín skoðun - 19.þáttur. 06102026

Heil og sæl. Í dag er nóg um að vera að vanda. Aron Guðmundsson er í beinni frá Tallin í Eistlandi þar og hitar upp fyrir leikinn í Þjóðadeildinni sem er í kvöld. Aron Pálmarsson þjálfari FH er á línunni en FH mætir Limoges frá Frakklandi í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld og verður leikið í Kaplakrika. Arnar Páll Garðarsson sérfræðingur í kvennafótboltanum hér heima spjallar við mig um Val og Víking sem féllu úr Bestu deild kvenna um síðustu helgi og Teitur Örlygsson körfuboltagoðsögn spáir svo í spilin fyrir komandi leiktíð í Bónusdeild karla. Takk POULSEN og LENGJAN.

X977 - Mín skoðun - 18.þáttur. 05102026

Heil og sæl. Í dag kemur Þórhallur Dan í heimsókn og við förum yfir landsleikinn gegn Búlgaríu og einnig um leikinn á morgun og svo förum við yfir helstu úrslit annarra leikja í Þjóðadeildinni. Þá heyri ég Einari Jónssyni handboltaþjálfara og við förum yfir gang mála á þeim bænum og Einar svarar því hvernig Fram fór að því að tapa með 18 marka mun fyrir Aftureldingu. Takk LENGJAN og POULSEN.

X977 - Mín skoðun - 17.þáttur. 02102026

Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Kristni Kjærnested og við förum yfir gang mála í Manchester City málinu, Ronaldo, tölum íslenska landsliðið og margt margt fleira. Arnar Páll Garðarsson er svo á línunni um Bestu deild kvenna en í dag skýrist það hvaða tvö lið falla í Lengjudeildina. Valur, Víkingur og Þór/KA eru að berjast og þá verður einnig leikið í efri hlutanum á sunnudag.  Í lok þáttar gaf ég síðan í beinni útsendingu, miða á Ísland-Búlgaría á morgun. Takk POULSEN og LENGJAN.

X977 - Mín skoðun - 16.þáttur. 01102026

Heil og sæl. Í dag er nóg um að vera að vanda. Einar Jónsson og Björgvin Páll Gústavsson ræða við mig um handboltann hér heima og í útlöndum. Einn helsti stuðningsmaður Manchester City á Íslandi, Magnús Ingvarsson, er svo á línunni um stöðu City. Verður félagið dæmt niður um deild eða deildir eða er þetta allt bull og vitleysa. Þetta og sitthvað fleira er í þætti dagsins. Takk LENGJAN og POULSEN.

X977 - Mín skoðun - 15.þáttur. 30092026

Heil og sæl. í dag heyri ég Eysteini Pétri Lárussyni framkvæmdastjóra KSÍ. Við tölum um verðlaunaafhendingar yngri flokka, nýjan Laugardalsvöll, þjóðsönginn og spyr afhverju leikir U21 árs liðsins eru alltaf klukkan 15 á deginum. Þá er Þórhallur Dan á línunni og við tölum um sigurleikinn gegn Luxembourg í gær og fleira til. Að lokum gaf ég þremur heppnum hlustendum miða á landsleikinn á laugardag. Takk LENGJAN og POULSEN.

X977 - Mín skoðun - 14.þáttur. 29092026

Heil og sæl. Í þætti dagsins heyri ég í Óskari Bjarna Óskarssyni handboltagúrú og við tölum um evrópuleik Vals gegn danska liðinu Mors Thy sem er í kvöld og komum víðar við í handboltanum. Þá heyri ég í Benedikt Guðmundssyni körfuboltagúrú um Bónusdeild kvenna sem hefst í kvöld og spáum í spilin. Þetta og ýmislegt fleira er í þætti dagsins. Takk POULSEN og LENGJAN.

X977 -  Mín skoðun - 13.þáttur. 28092026

Heil og sæl. Í dag kemur Þórhallur Dan í heimsókn og við ræðum um A-landsliðið okkar í fótbolta og förum yfir málin þar á bæ. Er Arnar Gunnlaugsson kominn á endastöð? Við tölum einnig um U21 árs liðið okkar og svo förum við í gang mála í öðrum landsleikjum. Þá hringi ég til Spánar og heyri í Einar Andra handboltaþjálfara en FH er að fara að leika í evrópukeppninni gegn Bidasoa. Þetta og sitthvað fleira. Takk POULSEN og LENGJAN.

X977 - Mín skoðun - 12.þáttur. 25092026

Heil og sæl. Í þætti dagsins er Kristinn Kjærnested á línunni og við tölum um Þjóðadeildina, íslenska landsliðið, Val og KR og fleira. Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari NSI Runavik kemur svo í hljóðver og við tölum um hann og hans frábæra árangur í Fareyjum og ég spyr hvort hann verði áfram í Færeyjum.  Takk POULSEN og LENGJAN.

X977 Mín skoðun - 11.þáttur.24092026

Heil og sæl. Í þætti dagsins hringi ég til Noregs og spjalla við Frey Alexandersson þjálfara Rosenborg. Við ræðum um Noreg-Danmörk sem er í kvöld og leik Íslands og Eistlands ásamt ýmsu öðru. Þá er Einar Jónsson á línunni um handboltann en það er stórleikur í kvöld í Olísdeildinni, FH-Haukar. Þá gaf ég miða á landsleikinn en heppnir hlustendur hringdu í beina útsendingu á X977 í símann 5170977 og nældu sér í miða. Takk fyrir POULSEN og LENGJAN.

X977 - Mín skoðun. 10.þáttur. 23092026

Heil og sæl. Í dag er Þóroddur Hjaltalín yfirmaður dómaramála hjá KSÍ í heimsókn og við förum yfir dæmgæsluna í sumar. Kemur VAR á næstu leiktíð? Afhverju eru ekki fleiri A dómarar í Bestu deild kvenna? Afhverju er meiri harka leyfð í dag og fleiri spurningar sem Þóroddur svarar. Þá heyri ég í Gunnar Birgissyni íþróttafréttamanni sem ræðir við mig um andstæðinga Breiðabliks og FH í evrópukeppni kvenna og svo var ég í gjafastuði og gaf miða a´landsleikinn á laugardag. Þetta og sitthvað fleira í þætti dagsins. Takk LENGJAN og POULSEN.

Þér gæti líka líkað...