Spjöllum saman um morð, mannshvörf, raðmorðingja og dularfull dauðsföll sem eru bæði leyst eða óleyst mál! Nýr þáttur kemur út alla miðvikudaga. Þú finnur okkur á facebook og instagram: Morðskúrinn. www.pardus.is/mordskurinn

Colleen Slemmer
Colleen Slemmer var aðeins 19 ára gömul þegar hún fannst myrt, en hún hafði verið í prógrammi á vegum vinnumálastofnunar þar sem henni hafði verið úthlutað búsetuúrræði í Knoxville. Það hafði ekki gengið áfallalaust fyrir sig, þar sem hún varð fyrir miklu einelti af hálfu annarra nemenda sem stunduðu prógrammið. Það tók rannsakendur ekki langan tíma að upplýsa mál hennar, þar sem ein af þeim sem réðst á hana hafði meðal annars tekið brot úr höfuðkúpunni hennar og sýnt samnemendum þeirra. Sú stelpa hét Christa Pike, en hún hefur setið inni á dauðadeild síðan 1995 og mun aftaka hennar fara fram í dag, 30. september 2026 klukkan 15:00.

Russel og Shirley Dermond voru komin vel á níræðisaldur og búin að koma sér vel fyrir í úthverfi við Lake Oconee. Lífið snerist fyrst og fremst um að njóta, þau eyddu tíma sínum með börnum, að sinna félagslífinu og voru dugleg að mæta á viðburði. Það kom því virkilega á óvart þegar þau mættu ekki á einn slíkan þann 3 maí árið 2014. Þremur dögum síðar fannst Russel látinn inn á heimili þeirra en Shirley var hvergi að finna. Þátturinn er í boði Heimaskipulag - kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inn á www.heimaskipulag.is Define the Line - kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt inn á www.definetheline.is Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Robert Brashers
Einn dag var Robert tekinn við að reyna að brjótast inn á heimili viðskiptavinar síns, hann var á leiðinni í fangelsi en ákvað að fara á flótta. Hann fór hinsvegar ekkert langt og eyddi oft á tíðum tíma með eiginkonu sinni og börnum á meðan hann átti að vera í felum. Einn daginn bankaði lögreglan svo upp á hjá þeim, sem varð til þess að Robert sá ekki aðra leið en að taka sitt eigið líf. Það sem átti eftir að koma í ljós var að hann var viðriðinn miklu meira heldur en grunur var um í fyrstu.

Stacey Colbert
Stacy Colbert var 23 ára gömul, nýútskrifuð úr markaðsfræði og nýbyrjuð í starfi sem markaðsgreinandi í Columbus, Ohio. Hún hafði komið sér vel fyrir í íbúð í fjölbýlishúsi en það var einmitt þaðan sem hún hvarf eitt kvöld árið 1998 og það algjörlega sporlaust. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Dustin Wehde
Dustin hafði kynnst nágrönnum sínum Tracey og Michael nokkuð vel, og var hann duglegur að hjálpa þeim með allskyns verkefni sem stóð honum til boða. Hinsvegar mætti hann einn daginn óboðinn inn á heimili Tracey með vini sínum og ætlaði að ráðast á börnin hennar, svo Tracey tók til sinna ráða að verja fjölskylduna sína. Enginn skildi hvers vegna, en rannsókn átti eftir að leiða það í ljós. Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag

LaNelle Barsock
LaNelle Barsock var ótrúlega dugleg kona, búin að mennta sig, kaupa sér hús og hlakkaði til að koma sér þar betur fyrir. Hún var vel liðin af öllum enda ótrúlega ljúf og góð við allt og alla. Það var því gríðarlegt áfall þegar LaNelle var myrt inn á heimili sínu. Þátturinn er í boði Define the Line Heimaskipulag Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Staudte fjölskyldan
Staudte fjölskyldan samanstóð af Mark, Diane og börnum þeirra fjórum, þeim Shaun, Sarah, Rachel og Brianna. Á fimm mánaða tímabili árið 2012 gerðust dularfullir hlutir innan fjölskyldunnar, þegar fjölskyldumeðlimur byrjuðu að veikjast og að lokum deyja. Rannsókn átti eftir að leiða í ljós hvað raunverulega var að gerast fyrir fjölskyldumeðlimina. Þátturinn er í boði Define The Line og Heimaskipulag

Taylor Behl
Hin 17 ára gamla Taylor Behl var skynsöm og ábyrg stelpa og nýbyrjuð í háskóla þegar hún hvarf að virtist sporlaust. Hún hafði ætlað að skreppa frá til að gefa herbergisfélaga sínum smá næði en hún átti aldrei eftir að skila sér heima aftur. Það var ekki fyrr en 10 dögum eftir hvarf hennar sem að málið rataði í hendur lögreglu - fram að því hafði háskólalögreglan haldið því fram að hún hafi bara látið sig hverfa sjálf. Þátturinn er í boði Define the Line Sport Heimaskipulag Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn

Dan Markel
Dan og fyrrverandi eiginkona hans Wendy voru með sameiginlegt forræði, sem gerði það að verkum að hún gat ekki flutt aftur til foreldra sinna. Það kom henni þó í opna skjöldu þegar Dan var myrtur á heimili sínu einn daginn, og tókst rannsóknarlögreglumönnum að rekja ferðir þeirra sem höfðu orðið honum að bana. Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt hjá Define The Line Kóðinn morðskúrinn veitir 15% afslátt hjá Heimaskipulag

Sherri Jo Elliot
Hin 16 ára gamla Sherri Jo hélt af stað í skólann þann 16 nóvember árið 1983 en í skólann átti hún aldrei eftir að skila sér. Lögreglan tók ofboðslega létt á hvarfi Sherri og taldi að hún væri unglingur í uppreisn. Svo var aldeilis ekki því lík hennar átti eftir að finnast fjórum dögum síðar og við tók ansi löng lögreglurannsókn. Þátturinn er í boði Define the Line Heimaskipulag Komdu í áskrift! www.pardus.is/mordskurinn



