#29 | Kristjana Stefánsdóttir og kjarkurinn til að prófa
Kristjana Stefánsdóttir er ekki bara ein allra besta söngkona og tónlistarkona landsins. Hún er líka söngkennari, raddþjálfari, tónlistarstjóri, höfundur, dansari og svo mætti lengi telja. Hún hefur starfað með ótrúlega breiðum hópi íslensks tónlistarfólks, komið víða við í leikhúsi og síðustu ár hefur hún meira að segja ferðast um heiminn sem dansari.
Hér á eftir ræðir hún um fjölbreyttan feril sinn í tónlistinni, allt frá Ritvélum framtíðarinnar til samstarfs við HAM, Pál Óskar, Bubba, Egil Ólafs og fleiri. Hún segir frá löngu og gefandi samstarfi sínu við Svavar Knút, tónlistinni, vináttunni og tónleikaferðum þeirra um landið.
Hún segir einnig frá óvæntri leið sinni inn í dansheiminn og hvernig verkefni sem átti upphaflega aðeins að vera nokkrar sýningar hefur þróast í yfir 50 sýningar í meira en 30 löndum.
Hún segir frá hugmyndum sínum að nýrri plötu, fullri skúffu af lögum og þeirri ákvörðun að sleppa tökunum á fyrir fram ákveðnum hugmyndum og leyfa verkefnum að þróast. Hún ræðir um sköpunina, kennsluna, raddþjálfunina, trúða, leikhúsið og hvers vegna hún myndi „geispa golunni“ ef hún væri ekki í einhverju skapandi
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
Fleiri þættir af Popparasögur
- #33 | Franz Gunnarsson og upptökur með einum þekktasta upptökumanni heims (seinni hluti)6. október 2026
- #32 | Franz Gunnarsson og markaðsherferðir með lögregluna á hælunum (fyrri hluti)6. október 2026
- #31 | Á móti sól og ennþá á toppnum eftir 30 ár29. september 2026
- #30 | Egill Örn Rafnsson og hversu línan getur verið þunn í tónlistarheiminum22. september 2026
- #28 | Valdimar Guðmundsson og að hafa trú á sjálfum sér (seinni hluti)8. september 2026
- #27 | Valdimar Guðmundsson og lætin eftir að Yfirgefinn sló í gegn (fyrri hluti)8. september 2026






