#30 | Egill Örn Rafnsson og hversu línan getur verið þunn í tónlistarheiminum
Egill Örn Rafnsson hefur átt langan og viðburðaríkan feril eftir að hafa byrjað mjög ungur að vinna sem tónlistarmaður. Hann var aðeins 15 ára þegar hann var farinn að spila á börum í miðborg Reykjavíkur og 18 ára þegar tónlistin varð að aðalstarfi. Fyrst með Buttercup, svo Ber, á sveitaböllum og í stúdíói.
Hér á eftir fer hann yfir ferilinn, allt frá fyrstu árunum í skólahljómsveitinni og hljómsveitinni Sign, yfir í Buttercup og fjölmiðlafárið þegar hann var rekinn úr hljómsveitinni. Hann segir frá stofnun hljómsveitarinnar Ber og spilamennskunni um land allt, lífinu í rútunni, bömmerböllum, sveitaballalífinu og því að byggja eigið stúdíó.
Hann talar um áhrif föður síns, Rafns Jónssonar heitins, á tónlistarferilinn, andlát hans árið 2004 og hvernig hann tók við af honum sem trommari í hljómsveitinni Grafík. Þá segir hann frá löngum tónleikaferðum erlendis og lífinu í London þar sem hann reyndi að fóta sig sem tónlistarmaður og var nálægt því að fá tækifæri með stórum hljómsveitum á borð við Queens of the Stone Age og Placebo.
Hann segir frá því þegar Sign reyndi að meika það erlendis, tónleikaferðunum með Skid Row og þegar hann, fárveikur með 40 stiga hita, spilaði fyrir Dennis Rodman og meðlim Papa Roach á einum þekktasta tónleikastað Bandaríkjanna.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon.
Fleiri þættir af Popparasögur
- #33 | Franz Gunnarsson og upptökur með einum þekktasta upptökumanni heims (seinni hluti)6. október 2026
- #32 | Franz Gunnarsson og markaðsherferðir með lögregluna á hælunum (fyrri hluti)6. október 2026
- #31 | Á móti sól og ennþá á toppnum eftir 30 ár29. september 2026
- #29 | Kristjana Stefánsdóttir og kjarkurinn til að prófa15. september 2026
- #28 | Valdimar Guðmundsson og að hafa trú á sjálfum sér (seinni hluti)8. september 2026
- #27 | Valdimar Guðmundsson og lætin eftir að Yfirgefinn sló í gegn (fyrri hluti)8. september 2026






