#35 | Sniglabandið og stundum þarf að stinga puttanum í augað
Hljómsveitin Sniglabandið hefur verið ein af vinsælustu hljómsveitum Íslands síðustu áratugi og er hvergi nærri hætt. Hvort sem fólk tengir hljómsveitina við að vera í góðu skapi, útvarpsþættina þeirra vinsælu, Jólahjól, bifhjólasamtökin Sniglana, ferðalag þeirra til Sovétríkjanna, sunnudagskvöld á Gauki á stöng eða annað þá hafa þeir félagar verið áberandi nær allt frá stofnun árið 1985.
Í þessum fyrsta hluta fara þeir Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson, eða Diddi, og Skúli Gautason yfir sögu sveitarinnar en auk þeirra eru í hljómsveitinni Björgvin Ploder, Einar Rúnarsson, Pálmi Sigurhjartarson og Þorgils Björgvinsson.
Í þessum fyrsta hluta segja þeir frá upphafi Sniglabandsins, sveitaballabransanum, hljómsveitarrútunni sem var gamall matarvagn, hestinum í Bólstaðarhlíðarbrekkunni, fyrstu böllunum, mannabreytingum, Stebba Hilmars, eftirminnilegum uppákomum þegar gestir nálguðust sviðið í mismunandi tilgangi, dverg að þvo bíl, áherslubreytingum með nýjum mönnum og sérstöðu Sniglabandsins þegar kemur að sambandi við áhorfendur.
Þetta er fyrsti hluti af fjórum af sögu Sniglabandsins.
Þessi þáttur er í boði Kölska - kolski.is.
Umsjón: Vignir Egill Vigfússon
Fleiri þættir af Popparasögur
- #41 | Snorri Helgason og að halda alltaf áfram að halda áfram17. nóvember 2026
- #40 | Daníel Andri Eggertsson og sögurnar af goðsögnum íslenskrar tónlistarsögu10. nóvember 2026
- #39 | Einar Örn Jónsson og allt um það að vera Nakinn í Paradís þegar Jólin eru að koma3. nóvember 2026
- #38 | Sniglabandið og sannleikurinn um Jólahjól27. október 2026
- #37 | Sniglabandið og mafían og mútur í Sovétríkjunum27. október 2026
- #36 | Sniglabandið og vinsælasti útvarpsþáttur á Íslandi20. október 2026






