Rauða borðið 26. mars - Samstöðvarsigur og litróf listarinnar
Fimmtudagur 26. mars
Samstöðvarsigur og litróf listarinnar
Þátturinn er stuttur í kvöld, en veðurofsi fyrri part dags setti dagskrána aðeins úr skorðum, svo í þessum síðasta þætti Rauða borðsins fyrir Páska bjóðum við upp á tvö viðtöl við tvo góða gesti. Fyrst fær Björn Þorláks til sín góðvin Rauða borðsins, Gísla Tryggvason. Innslagið Réttur er settur, sem þeir félagar hafa haldið úti í vetur fjallar í þetta sinn um sigur Samstöðvarinnar í meiðyrðamáli sem Gísli rak fyrir dómi nýlega fyrir hönd miðilsins. Sýningin „Þegar ég sé þig, sé ég mig” var nýlega sýnd á sviði Borgarleikhússins, en sýningin var samsett úr sögum Íslendinga af blönduðum uppruna, sem sjálfir sögðu sögu sína á sviðinu. Skúli Issac Qase er einn af leikurum í sýningunni, en hann ræðir sýninguna og sína sögu við Laufeyju Líndal, ásamt broti úr sögu móður sinnar, Amal Rúnar Qase, sem var áberandi í íslensku samfélagi á tíunda áratug síðustu aldar.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






