Rauða borðið 25. mars - Húsnæðislán, Reynsluboltar, Trump-tíminn og alþjóðamál
Miðvikudagur 25. mars
Húsnæðislán, Reynsluboltar, Trump-tíminn og alþjóðamál
Marinó G Njálsson ráðgjafi hefur verið skipaður af ráðherra formaður stýrihóps um nýtt húsnæðislánakerfi. Marínó vill losna við verðtryggingu. Björn Þorláks ræðir við hann. Viðar Eggertsson leikari, Ólafur Arnarson blaðamaður og Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambands Íslands kryfja fréttir og þjóðmál í umræðuþættinum Reynsluboltar í umsjá Björns Þorláks. Mogginn, hagstjórn og ESB til umræðu. Trumptíminn verður á sínum stað. Gestir í dag eru Bjarni Randver Sigurvinsson guðfræðingur og Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur, Björn Þorláks ræðir við þau. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor við Háskólann á Akureyri ræðir alþjóðamál og ekki síst áhrif stríðsins í Íran í samtali við Björn Þorláks.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






