Rauða borðið 24. mars - Fréttir og pólitík, fordómar, dánaraðstoð og falleinkunn

· Fréttir

Þriðjudagur 24. mars
Fréttir og pólitík, fordómar, dánaraðstoð og falleinkunn

Aðalsteinn Kjartansson fréttastjóri Heimildarinnar og Sigmundur Ernir Rúnarsson komu til að ræða pólitík og helstu fréttir. Þarna voru vanir menn sem fóru vítt og breytt um fréttasviðið hér og út í hinum stóra heimi. Grímur Atlason hjá Geðhjálp ræðir könnun um fordóma, geðsjúkdóma og fíkn. Krísur ungs fólks ber á góma sem og tilgang lífsins. Björn Þorláksson ræðir við hann. Svanur Sigurbjörnssson læknir kom til okkar. Umræðuefnið var dánaraðstoð og hvar hún er leyfð og hvað þarf að koma til svo sjúklingur geti fengið dánaraðstoð. Jón K. Jacobsen, faðir drengsins sem lést í brunanum á Stuðlum, segist hvorki reiður né finna hatur þótt hannn myndi sjálfur jafna Stuðla við jörðu ef hann kæmist til áhrifa í meðferðarstarfi. Björn Þorláks ræðir við hann.

Rauða borðið

Úr hlaðvarpinu

Rauða borðið

Gunnar Smári Egilsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Rauða borðið