Rauða borðið 11. mars: Reynsluboltar, hópnauðgun, íþróttastefna og lögfræði
Miðvikudagur 11. mars
Reynsluboltar, hópnauðgun, íþróttastefna og lögfræði
Jenný Kristín Valberg, framkvæmdastýra Bjarkarhlíðar og Guðný S Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar ræða hópnauðgun, fjölgun alvarlegra brota og tregðu stjórnvalda að setja meinta gerendur í gæsluvarðhald. María Lilja ræðir við þær. Erna Bjarnadóttir hagfræðingur, Árni Guðmundsson forvarnafulltrúi og Andrés Skúlason Landverndarmaður ræða ESB, hagstjórn, umhverfismál, áfengisbölið og fleira með Birni Þorláks. Erlingur Jóhannsson íþróttafræðingur ber saman stefnu Noregs og Íslendinga í íþróttum og ræðir almenna þátttöku og lýðheilsu en einnig afreksstefnu í samtali við Björn Þorláks. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir við Björn Þorláks um lagaleg álitaefni tengd fréttum líðandi stundar. Pælingar um vanhæfi ráðherra, Edison-málið óhuggulega, ný stjórnarskrá í tenglum við ESB-aðild, svipting skotvopnaleyfis og fleiri mál ber á góma.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






