Synir Egils 1. mars - Pólitík innanlands og utan, framboðslistar, svekkt fólk og glatt
Sunnudagurinn 1. mars
Synir Egils: Pólitík innanlands og utan, framboðslistar, svekkt fólk og glatt
Að venju verður farið yfir helstu fréttir líðandi stundar með góðum gestum. Rætt um nýja frambjóðendur og þá líka sem flokkar hafna. Ekki síst hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík þar sem reyndum borgarfulltrúum er fórnað fyrir nýja. Meðal helstu frétta sem verða til umfjöllunar eru 60 milljarða staðgreiðsla Kerecic á Ísafirði, Íran, Sjálfstæðisflokkur klofnar á Akureyri Þórhallur Jónsson boðar nýtt framboð. Heimir Örn Árnason og Berglindi Ósk Guðmundsdóttur eru í fyrstu sætunum hjá Sjálfstæðisflokki. Reykjadalur fær peninga sem verða þá teknir frá öðrum ámóta úrræðum. Stjórnmálaaflið sem kenndi sig við Heimaey og bæði Íris Róbertsdóttir, fráfarandi bæjarstjóri og Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar tilheyrði, hefur hætt störfum. Heiða Björg er ekki á framboðsmynd Samfylkingarinnar. Sprengiflaugar frá Ísrael hafa dunið yfir Íran. Staðfestir er að æðstiklerkur Írans Ali Khamenei sé látinn. Vopnakaup Íslands fyrir Úkraínu, Epstein-skjölin, Dorrit og Ólafur Ragnar, eiga Íslendingar að óska eftir frekari upplýsingum? Hvað með Gaza, gleymt og grafið?
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






