Rauða borðið 19. feb - Mengun, reynsluboltar, verðbólga og eldhestur
Fimmtudagur 19. febrúar
Mengun, reynsluboltar, verðbólga og eldhestur
Við hefjum leik á mengaðri borg. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, Diljá Ámundadóttir, móðir langveiks barns og Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks ræða svifryk og fleira, stöðuna og úrbætur. Oddný Harðardóttir, fyrrum þingmaður og ráðherra, Ágúst Borgþór Sverrisson fréttastjóri DV og Björg Eva Erlendsdóttir fjölmiðlakona, nú hjá Landvernd, ræða fréttir líðandi stundar. Barnaníð, Andrew, þingið, klaufaskap og aðvífandi innrás í Írak ber á góma.
Gunnlaugur Guðmundsson stjörnuspekingur segir Gunnari Smára frá ári eldhestsins sem var að byrja, en því mun fylgja hraði og róttækar breytingar samkvæmt kínverskri stjörnuspeki. Már Mixa fjármálafræðingur og dósent við HÍ, styður ekki áform ríkisstjórnarinnar um afnám verðtryggingar. Hann segir verðtryggð lán bestu leiðina til að komast inn á íbúðamarkað í samtali við Björn Þorláks.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






