Rauða borðið 10. feb - Ofurkraftar, íslensk menning, sprúttsala og leiksskólar

· Fréttir

Þriðjudagur 10. febrúar
Ofurkraftar, íslensk menning, sprúttsala og leiksskólar

Ólafur Ævarsson geðlæknir heldur áfram greiningum á geðveiki og umræðu í samtali við Björn Þorláks. Þeir ræða mátt persónuleikans þegar andlegar krísur ógna heilsu fólks. Ólafur gefur hollráð á sama tíma og leitast er við að brjóta niður veggi fordóma og skammar. Auður Jónsdóttir rithöfundur og blaðamaður, Ragnar Helgi Ólafsson skáld og bókahönnuður, Rán Flygenring bókarhöfundur og Viktoría Blöndal höfundur og leikstjóri ræða við Gunnar Smára um stöðu íslenskrar menningar á viðsjárverðum tíma. Dr. Lára Sigurðardóttir, læknir og lýðheilsufræðingur, hefur lengi varað við aukinni nikótínneyslu ungs fólks, ekki síst með síaukinni notkun nikótínpúða. Lára finnur einnig að auknu aðgengi að áfengi. Ekki síst hversu langt er gengið í áfengissölu. Það er Sigurjón Magnús sem ræðir við Láru. Kristín Dýrfjörð býr yfir mikilli reynslu af leikskólum, jafnt sem starfsmaður, stjórnandi og háskólakennari. Hún segir umræðu á villigötum um leikskólana og ræðir úrbætur í samtali við Björn Þorláks.

Rauða borðið

Úr hlaðvarpinu

Rauða borðið

Gunnar Smári Egilsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Rauða borðið