Rauða borðið 26. jan - ESB, snjallsímabann, fjölmiðlar, okur og Ungverjaland
Mánudagur 26. janúar
ESB, snjallsímabann, fjölmiðlar, okur og Ungverjaland
Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Thomas Möller ráðgjafi eru ósammála um hvort Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið. Þau brýna rök sín í spjalli við Gunnar Smára. Ásdís Bergþórsdóttir sálfræðingur efast um að bann á snjallsíma- og samfélagsmiðlanotkun barna muni bæta líða barna, heldur jafnvel auka vanlíðan hjá hópi barna. Ásdís útskýrir þetta fyrir Gunnari Smára. Akademískt frelsi og frelsi fjölmiðla sætir árásum. Evrópuráðið lýsir áhyggjum af öfugþróun. Henry Alexander Henrysson heimspekingur ræðir við Björn Þorláks um viðsjárverða veröld. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum ræðir mál sem varða neytendur í samtali við Björn Þorláks. Olíufélögin hafa gengið á lagið eftir kerfisbreytingar og seilast djúpt í vasa neytenda með hæstu álagningu. Snærós Sindradóttir listfræðingur segir Gunnari Smára frá komandi kosningum í Ungverjalandi, þar sem Victor Orban gæti fallið eftir langan valdatíma.
Fleiri þættir af Rauða borðið
- Þriðjudagur 6. október - Trump, Aþena, áfengi, kalt stríð og sinfó6. október 2026
- Rauða borðið 5. okt - Efnahagsmál, SÁÁ, geðlyf, ofbeldi og gervigreind5. október 2026
- Rauða borðið - Helgi-spjall: Stefán Pálsson3. október 2026
- Rauða borðið - Vikuskammtur: Vika 402. október 2026
- Rauða borðið 1. okt - Reynsluboltar, leynd, undirheimar, krabbamein, gervigreind og atkvæðavægi1. október 2026
- Rauða borðið 30. sept - Efnahagur, heimsmál, tíðnimeðferð, Svikasögur og kórar30. september 2026






