Rauða borðið 27. nóv - Nató, heimilisleysi, reynsluboltar, fallnir múrar og íslenskan

· Fréttir

Fimmtudagur 27. nóvember
Nató, heimilisleysi, reynsluboltar, fallnir múrar og íslenskan

Soffía Sigurðardóttir hernaðarandstæðingur ræðir við Maríu Lilju um hernaðarbandalagið m.t.t. frétta dagsins. Einar Ingi Kristinsson og Guðbjörg Inga Guðjónsdóttir tala um reynslu sína af götunni. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við þau. Fjölmiðlakonan Sirrý Arnardóttir, Páll Ásgeir Ásgeirsson blaðamaður og Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmdastýra Kvenréttindafgélags Íslands fara yfir helstu mál. Fúin kerfi, pólitíkin, hernaður og fleira verður til umræðu. Björn Þorláks ræðir við þau. Þegar múrar falla, er heiti nýrrar bókar eftir Hörð Torfason. Þar rekur hann hvað varð að gera til að múrar féllu. Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, fer yfir helstu tíðindi jólabókaflóðsins og setur útgáfu hér innanlands í samhengi við varnarbaráttu íslenskrar tungu. Björn Þorláks ræðir við hann.

Rauða borðið

Úr hlaðvarpinu

Rauða borðið

Gunnar Smári Egilsson

Allir þættir

Fleiri þættir af Rauða borðið